My Creative Box föndurkassinn kemur með öllu sem til þarf til þess að búa til sex mismunandi verkefni tengd risaeðlum. Í kassanum eru upplýsingar fyrir hvert og eitt verkefni sem og allur efniviður og því óþarfi að kaupa eitthvað aukalega. Tilvalið til að taka með í ferðalagið vitandi að það þarf ekki að “skjótast” út í búð til þess að kaupa skæri eða límstifti.