Gáttarpakkinn frá Connetix í pastel litum er fullkomin viðbót fyrir skapandi börn á öllum aldri.
Skæri gáttarpakkinn hefur notið mikilla vinsælda og því ekki nema von að hann komi líka í pastel. Gáttarpakkinn gefur börnum (sem og fullorðnum!) tækifæri til þess að stíga inn í nýja vídd skapandi leiks með endalausum möguleikum.
Gáttarpakkinn inniheldur átta mismunandi pastel liti eins og aðrir pastel-pakkar frá Connetix. Þrjár mismunandi stærðir af ferningum sem raðast hver inn í annan. Minnstu flísarnar í pakkanum innihalda sömu ‘smart spin’ tækni og flísarnar í PRO-pökkunum sem gerir okkur kleift að byggja þvers og kruss.